Bjórarnir okkar – frá fjöllum til froðu!

Þegar vatn verður að kraftverki!

Bjórinn og vatnið

Vatn hefur ekki alltaf verið sjálfsagður hlutur í Vestmannaeyjum. Áður fyrr þurftu Eyjamenn að safna regnvatni, grafa brunna og jafnvel flytja vatn til Eyja með skipum. Árið 1968 urðu tímamót þegar ferskt lindarvatn fór í fyrsta sinn að renna til Eyja eftir neðansjávarleiðslu frá fastalandinu. Enn í dag kemur vatnið okkar úr lindum undir Eyjafjöllum og ferðast um 13 kílómetra eftir sjávarbotninum til Vestmannaeyja.

Hjá Brothers fær þetta langferðavatn svo nýtt hlutverk – því okkur fannst synd að eftir allt þetta ferðalag myndi vatnið bara enda í vatnsglasi og því brugguðum við bjór!

Munum að njóta!