The Brothers Brewery

Skilmálar

Almennt
The Brothers Brewery ehf áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, vegna rangra verðupplýsinga og breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust.

Afhending vöru
Allar vörur eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Öllum pöntunum sem ekki eru á höfuðborgarsvæðinu eða í Vestmannaeyjum er dreift af Íslandspósti og gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá The Brothers Brewery ehf til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd með innleggsnótu. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Verð
The Brothers Brewery áskilur sér rétt til að breyta verðum án fyrirvara.

Skattar og gjöld
Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin.
Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir.Eða endurgreiðum ef þess er krafist.
Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Suðurlands