Lýsing
Bjórhátíðin 2025 verður 20. og 21. júní næstkomandi þar sem brugghús og veitingastaðir koma saman til að para saman frábæran bjór með frábærum mat. Þessi miði gildir sem aðgöngumiði að báðum dögum þar sem þú drekkur ótakmarkað af bjór ásamt matarmiða frá veitingastað. Bjórhátiðin verður í stóru tjaldi sem verður reist við brugghúsið okkar í Eyjum frá kl 15-19:00 báða dagana.
Nú þegar hafa 10 brugghús staðfest komu sína á bjórhátíð en innifalið í miðaverði verður smakk frá þeim öllum en brugghúsin stefna öll á að koma með að lágmarki tvo bjóra fyrir föstudaginn og svo aðra tvo bjóra fyrir laugardaginn. Ásamt Íslenskum brugghúsum munu handverksframleiðendur á sterku áfengi, kokteilum og náttúruvíni einnig láta sjá sig á hátiðinni. Nokkur erlend brugghús hafa nú þegar líst yfir vilja að koma á hátíðina þannig að við stefnum á að vera með að lágmarki 20 brugghús eða framleiðendur af áfengi á hátíðinni. Miðað við stemningu síðustu ára má búast við hörku fjöri í Eyjum þessa helgi og að miðar munu væntanlega seljast á einhverjum tíma upp.
Ef óskað er eftir gjafabréfi þarf að hafa samband við okkur þar sem við gefum það út á viðeigandi vefpöntun. Öll armbönd og miðar eru afhendir hjá okkur á Ölstofunni okkar í Eyjum þannig að veljið sótt í verslun í sendingarmöguleika þar sem miðarnir verða eingöngu afhendir þar.
Kvittun fyrir kaupum er næginleg til þess að fá afhent armbönd fimmtudaginn 19. júní 2025 en tímasetning verður auglýst síðar.