The Brothers Brewery

Föstudagsmiði á Bjórhátíð 2021

5,990 kr.

Ekki til á lager

Lýsing

Bjórhátíðin 2021 verður 18. og 19. júní næstkomandi þar sem brugghús og veitingastaðir koma saman til að para saman frábæran bjór með gjegguðum mat. Þessi miði gildir eingöngu föstudaginn18. júní 2021. Áætlað er að föstudags sessionið verði frá 18:00-21:00 og svo laugardags session frá 15:00-19:00. Bjórhátiðin verður í stóru tjaldi sem verður reist við brugghúsið okkar í Eyjum.

Nú þegar hafa 10 brugghús og tveir veitingastaðir staðfest komu sína á bjórhátíð en innifalið í miðaverði verður smakk frá þeim öllum en brugghúsin stefna öll á að koma með að lágmarki tvo bjóra fyrir föstudaginn og svo aðra tvo bjóra fyrir laugardaginn. Ásamt Íslenskum brugghúsum munu handverksframleiðendur á sterku áfengi, kokteilum og náttúruvíni einnig láta sjá sig á hátiðinni. Miðað við stemningu síðustu ára má búast við hörku fjöri í Eyjum þessa helgi.

Kvittun fyrir kaupum er næginleg til þess að fá afhent armbönd fimmtudaginn 17. júní 2021 en tímasetning verður auglýst síðar.